-
Samfélagsleg áhrif: Byggja í átt að jafnri framtíð
Við hjálpum fyrirtækjum og samfélögum að njóta sín svo að mannkynið, samfélög og plánetan geti dafnað.
Fjárfestingar okkar
Þjóna sem lyftistöng fyrir alla, allsstaðar, með því að byggja upp þekkingu og hæfni í gegnum úrræði sem stuðla að jöfnu aðgengi að traustum og handhægum leiðum til að flytja peninga.
Samstarfsaðilar í alþjóðlega samfélaginu okkar
Úrræði fyrir fjármálamenntun
Alþjóðlegt stafrænt verkefni á vegum Visa veitir eigendum lítilla fyrirtækja og örfyrirtækja aðgang að ókeypis fræðsluúrræðum til að hjálpa þeim að hefja rekstur, stjórna fyrirtækjum sínum og vaxa.
Valdefling fyrirtækja sem rekin eru af konum
Samstarf á vegum Visa Foundation hjálpar milljónum lítilla fyrirtækja og örfyrirtækja sem rekin eru af konum um allan heim.
Stuðningur við örfyrirtæki í Kenýa
Samstarf okkar við Hand in Hand veitir rúmlega 10,000 örfyrirtækjum í Kenýa, þar af 75% í eigu kvenna, aðgang að viðskipta- og fjármálamenntun og aukinn aðgang að fjármálaþjónustu.
UMKM Bisa!
I samstarfi við Gojek í Indónesíu veitir Visa eigendum lítilla fyrirtækja og örfyrirtækja kennslu í gegnum netið og aðstoð til að viðhalda og efla rekstur sinn.
Village Capital
Samstarf á vegum Visa Foundation til að styðja við aðila sem vinna að því að brúa fjármagnsbilið sem frumkvöðlar í Suður-Ameríku standa frammi fyrir, með áherslu á nýsköpun á sviði matvælaframleiðslu og landbúnaðar.
Alþjóðlegur landbúnaðarþróunarsjóður
Samstarf á vegum Visa Foundation sem skapar atvinnutækifæri fyrir ungt fólk á landsbyggðinni í Afríku með því að hanna tengslanet nýstárlegra og samþættra búskaparstöðva til að byggja upp frumkvöðlastarfsemi sem og tækni- og stjórnunarkunnáttu.
TechnoServe
Samstarf á vegum Visa Foundation með það að markmiði að efla kynjafjölbreytni bændasamvinnufélaga á Indlandi og stofnanir þeirra svo þau séu betur í stakk búin að standa af sér efnahagsleg áföll.
IFundWomen
Alþjóðlegt samstarf til að hjálpa konum í atvinnurekstri að tryggja sér það fjármagn sem þær þurfa í gegnum samkeppni um styrki og aðgang að faglegri viðskiptaþjálfun.
Kiva
Samstarf á vegum Visa Foundation til að auka fjárhagslegt aðgengi fyrir lítil fyrirtæki og örfyrirtæki þar sem starfsfólk Visa aðstoðar við að veita fyrirtækjum innan verkefnisins örlán.
Starfsfólk okkar hefur áhrif
Visa hvetur og styður starfsfólk til að hafa áhrif á þann hátt sem veitir þeim mestan innblástur, hvort sem það er með sjálfboðavinnu, fjárframlögum eða aðstoð við valdeflingu fólks og samfélög í neyð.
Orlof til að sinna sjálfboðastarfi
Starfsfólk fær 16 klst af orlofi til að sinna sjálfboðastarfi.
Leiðsagnar- og lánaverkefni
Starfshópurinn okkar hjálpar litlum fyrirtækjum með því að veita leiðsögn og Kiva-lán.
Dollars for Doers
Starfsfólk fær 10 dollara fyrir hverja klukkustund sjálfboðastarfs til að gefa til góðgerðamála.